Veislur
Veislur með sögulegri umgjörð
Stóri salurinn býður upp á sveigjanlega uppsetningu, svið, svalir og tæknilega aðstöðu sem nýtist vel fyrir bæði formlegar og afslappaðar veislur. Hægt er að aðlaga rýmið að fjölda gesta, dagskrá og stemningu.


Veitingar
Veitingar í samstarfi við Lux veitingar
Gamla bíó hefur hafið samstarf við Lux veitingar sem sjá um veitingar í öllum veislum. Lux veitingar voru stofnaðar af Hinriki Lárussyni og Viktori Erni Andréssyni árið 2018 og standa fyrir lúxus, gæði og persónulega þjónustu. Báðir hafa starfað á mörgum bestu veitingastöðum Íslands, kepptu fyrir Íslands hönd í Bocuse d'Or og voru í Kokkalandsliðinu — Viktor Örn varð kokkur ársins 2013 og tók gullið í Norðurlandakeppninni 2014.
Veisluseðlar
Dæmi um veisluseðla
Veisluseðlar fyrir brúðkaup, afmæli, árshátíðir, gala dinner o.fl. (án verðs). Sendu fyrirspurn fyrir tilboð og nánari útfærslu.
Senda fyrirspurn um veislu
Segðu okkur frá tilefninu, fjölda gesta og dagsetningu og við sendum þér nánari upplýsingar.




