
Shrek Rave Is Coming To Reykjavík
25. september 2026 – 26. september 2026
20:00–01:00
Gamla bíó
Shrek Rave snýr aftur — DJ-ar spila Shrek-smelli og partílög alla nóttina.
Gamla bíó & Petersen svítan
Ingólfsstræti 2a · 101 Reykjavík · Sími 563 4000
Á dagskrá
Skoðaðu það sem er á dagskrá í Gamla bíói og Petersen svítunni. Hér birtast nýir viðburðir þegar þeir bætast við dagskrána.

25. september 2026 – 26. september 2026
20:00–01:00
Gamla bíó
Shrek Rave snýr aftur — DJ-ar spila Shrek-smelli og partílög alla nóttina.

29. október 2026
19:00–21:00
Gamla bíó
Uppistand með rússneska grínistanum Ваня Усович í Gamla bíói.

29. janúar 2027
20:00–22:00
Gamla bíó
Verðlaunaði uppistandarinn Pernille Haaland snýr aftur með glænýja klukkustund af uppistandi.
Tvö rými, ólík upplifun

Stóri salurinn í Gamla bíói hentar fyrir tónleika, ráðstefnur, árshátíðir, brúðkaup, galaveislur, sýningar og viðburði þar sem rými, saga og tæknileg umgjörð skipta máli.
Petersen svítan er hlýlegt og einstakt rými á þriðju hæð Gamla bíós. Hún hentar fyrir hópa, einkasamkvæmi, fundi, móttökur, after-work og minni veislur með útsýni yfir miðborgina.
Fyrir hvaða tilefni?
Hvort sem um er að ræða stóra sviðsupplifun, formlegan fund, standandi móttöku eða kvöldverð með gestum, hjálpum við þér að finna rétta rýmið og rétta uppsetningu.

Saga hússins
Gamla bíó hefur verið hluti af menningarsögu Reykjavíkur í tæpa öld. Húsið var reist fyrir kvikmyndarekstur Peters Petersen og hefur síðan tekið á móti bíógestum, óperuunnendum, tónleikagestum og fjölbreyttum viðburðum. Í dag sameinar húsið sögulegan karakter og nútímalega viðburðaaðstöðu.
Veislur og veitingar
Gamla bíó og Petersen svítan henta vel fyrir veislur af ólíkum stærðum. Í samstarfi við Lux veitingar er hægt að setja saman viðeigandi veitingar fyrir brúðkaup, árshátíðir, afmæli, móttökur, gala dinner og standandi viðburði.
Sendu okkur nokkrar upplýsingar um tilefnið, fjölda gesta og dagsetningu. Við hjálpum þér að finna rétta rýmið og næstu skref.