Gamla bíó
Hátíðarsalur / Bíósalur
Helstu upplýsingar
Sveigjanlegur salur á tveimur hæðum
Gamla bíósalnum hefur verið breytt í margnota sal sem hentar jafnt fyrir sitjandi galaveislur, ráðstefnur og rokktónleika. Með einföldum hætti er hægt að breyta ásjónu hans og opnar það fyrir ótal möguleika í viðburðarhaldi.
- Rúmar allt að 280 manns við hringborð, með setu á svölum.
- Rúmar allt að 300 manns við langborð.
- Rúmar allt að 750 manns fyrir standandi viðburði.
- Salurinn er á tveimur hæðum.
- Svalir setja sterkan svip á rýmið.
- Kristalskróna er hluti af salnum og má hífa upp eða niður eftir þörfum.
- Hljóð- og ljósakerfi.
- Öflugur skjávarpi.
- Stórt bíótjald.
- Möguleiki á að stækka eða minnka svið eftir þörfum.


Uppsetningar
Eitt rými, margar uppsetningar
Ráðstefna
Svið, skjár, hljóðkerfi og skýr salur fyrir fyrirlestra, kynningar og ráðstefnudagskrá.
Tónleikar og sýningar
Sviðið, hljóðið, ljósið og saga hússins skapa sterka umgjörð fyrir lifandi upplifun.
Veisla
Hægt er að setja salinn upp fyrir kvöldverð, gala dinner, brúðkaup, árshátíð eða standandi móttöku.
Bíó / kynning
Stórt bíótjald og skjávarpi gera salinn hentugan fyrir kvikmyndasýningar, frumsýningar og kynningar.
Fá tilboð í sal
Segðu okkur frá viðburðinum þínum og við sendum þér nánari upplýsingar og tilboð.
